
Vikusteik
Með steiktum kartöflum og rauðvínsósu
Aðferð
Helgarsteik
- 1
Taktu steikina úr kæli 30–40 mínútum fyrir eldun. Stilltu ofninn á 180°C (blástur).
- 2
Settu steikina í eldfast mót og helltu kjötsoði (eða vatni) í botninn.
- 3
Áætlaður eldunartími: 500 g–1 kg: 50–75 mín. 1–1,5 kg: 75–100 mín. 1,5–2 kg: 100–130 mín.
- 4
Helltu soðinu yfir 1–2 sinnum á meðan Á eldun stendur.
- 5
Sjóðið kartöflurnar í 10 mín og færið þær svo í skál.
- 6
Veltið kartöflunum upp úr ólífuolíu, salti, pipar og hvítlauksdufti.
- 7
Þrýstið létt á þær með glasi eða skeið ef þið viljið „smash“ kartöflur.
- 8
Dreifið þeim vel á ofnplötu. Bakið kartöflur við 180°C í 25–30 mínútur eða Þar til þær eru orðnar gullinbrúnar.
Rauðvínssósa
- 1
Saxaðu 1–2 skarlottulauka mjög fínt.
- 2
Bræddu 75 g smjör í potti. Steiktu laukinn í smjörinu við miðlungshita þar til hann verður mjúkur og glær (ekki brúna).
- 3
Bættu rauðvíni út í og leyfðu að sjóða niður um helming.
- 4
Helltu kjötsafa saman við og láttu malla á háum hita í 5‒10 mínútur.
- 5
Kryddaðu með pipar og bættu púðursykri smám saman við.
- 6
Ef sósan er of mild, bættu kjötkrafti.
- 7
Helltu rjómanum út í og lækkaðu hitann, láttu malla í 5 mínútur.
- 8
Ef hún þarf að þykkna: hrærðu smjörbolluni (hveiti og smjör blandað saman) út í.
- 9
Smakkaðu sósuna til áður en hún er borin fram.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






