Við elskum mat og við elskum að deila honum.

BaraMatur erum við tveir. Strákar sem elska að elda og deila því með ykkur á Instagram í nokkur ár. Núna erum við að flytja það yfir á vefinn okkar og taka ykkur með!
Hér færðu uppskriftir, innkaupalista sem hægt er að deila með vinum og fjölskyldu. Næringu sem reiknast sjálfkrafa og matarboð sem skipuleggja sig nánast sjálf. Allt er smíðað af BaraMatur.
Við höfum unnið að þessu í tæp tvö ár og erum rétt að byrja. Markmiðið er einfalt: að fá fólk til að elda!
Þetta er líka þinn vefur. BaraMatur er enn í mótun og við viljum heyra í þér: hugmyndir, ábendingar, spurningar og gagnrýni. Allt vel þegið. Vefurinn á að virka fyrir fólk sem eldar, og ábendingarnar ráða því hvað kemur næst.
Engin uppskrift er vitlaus. Vertu með frá byrjun.
Stærsta íslenska matarsamfélagið á Instagram.
Hönnun og virkni. Allt smíðað af okkur í tæp tvö ár.
Skrifaðar af fólki sem eldar og yfirfarnar áður en þær birtast.
Gæðaeftirlitið okkar
Við erum með gæðaeftirlit á síðunni. Uppskriftir fara því í gegnum örstutt samþykktarferli og lagfæringu ef þess þarf áður en þær verða birtar.
Við þökkum ykkur fyrir þolinmæðina og sérstaklega fyrir að deila uppskriftunum ykkar með okkur öllum.
Segðu okkur hvað þér finnst. Það skiptir okkur máli.
Vefurinn er nýr og hver einasta ábending, hugmynd eða kvörtun hjálpar okkur að byggja eitthvað sem virkar fyrir ykkur. Skrifaðu okkur á baramatur@baramatur.is eða sendu okkur skilaboð á Instagram. Við svörum.
Hafa samband: baramatur@baramatur.is


