
Ofnplötu kasjúkjúklingur
Aðferð
- 1
Hita ofn í 200°c.
- 2
Skera kjúkling í munnbita og velta vel upp úr kryddblöndu. Skera brokkolí niður í smærri bita, papriku í strimla eða bita og lauk í sneiðar.
- 3
Setja allt á ofnplötu eða í stórt fat, grænmeti með og kasjúhnetur ofan á.
- 4
Elda í 15 mín og gera sósuna á meðan: blanda öllum innihaldsefnum saman í skál.
- 5
Hella sósunni yfir og elda í 5-10 mín í viðbót, eða þar til kjúklingur er tilbúinn.
Athugasemd kokksins
Gott með hrísgrjónum. Hef gert sósuna líka í potti en það er svosem óþarfi og auka uppvask. Hægt að nota annað/meira grænmeti: sveppi, gulrætur eða kúrbít til dæmis, bara passa eldunartíma. Þægilegast (minnsti frágangur) að gera bara á ofnplötu, með bökunarpappír undir.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






