Fara í efnið
BaraMatur
Risa Quesadilla á ofnplötu
Aðalréttir#kjúklingur#naut#grænmeti#svín

Risa Quesadilla á ofnplötu

Valfrjálst prótín!

A
Uppskrift fráAlda Magnusdottir
2. október 2026
Einkunn
–
Engin einkunn enn
Tími
55 mín
20 + 35 mín
Orka
232 kcal
í 100 g
Ofn 190 °C
  1. 1

    Hita ofn í 190°c.

  2. 2

    Saxa lauk og skera papriku (litur papriku er valfrjáls) í litla bita.

  3. 3

    Hita ólífuolíu í stórri pönnu. Elda papriku og lauk þar til mjúk, bæta hakki við og elda þar til fulleldað, hella olíu/vökva af og krydda vel með papriku, kúmin og salt og pipar. Hella krukku af salsasósu ofaní. Hér má bæta við dós af (skoluðum) nýrnabaunum og elda létt með.

  4. 4

    Setjið 6 tortillavefjur á ofnplötu, svo helmingur þeirra hangi framyfir brúnir. Setjið svo eina í miðjuna á plötunni. Mokið innihaldinu ofaní og dreifið ostinum (ostmagn og tegund er alveg eftir smekk).

  5. 5

    Setja svo síðutu vefjuna í miðjuna ofan á og brjóta hinar vefjurnar niður til að loka öllu. Setjið aðra ofnplötu eða ofnfast mót ofan á (til að quesadillan opnist ekki) og baka þar til vefjurnar eru að verða stökkar.

  6. 6

    Taka plötuna/formið af og baka í 10-15mín í viðbót.

  7. 7

    Bera fram heitt með meðlæti að eigin vali.

Athugasemd kokksins

Það má nota hvaða prótín sem er í þessa uppskrift. Hakk, kjúkling, þær baunir sem þig lystir (maís myndu koma vel út með).

Instagram

Viltu fleiri rétti eins og þennan?

Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.

Fylgja @baramatur

Eldaðirðu þetta?

Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.

Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.

Ummæli

Þú þarft að vera innskráð til að setja inn ummæli.Skrá sig inn
Hleð ummælum…
Auglýsing
Póstlistinn

Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið

Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.

Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.