Fara í efnið
BaraMatur
Butter Chicken

Butter Chicken

Frábær indverskur réttur

BaraMatur Stimpillinn
Uppskrift fráBaraMatur
4. maí 2026
1.783áhorf
Einkunn
5,0
1 atkv.
Tími
50 mín
30 + 20 mín
Orka
193 kcal
í 100 g

Kjúklingur

  1. 1

    Takið skál og blandið saman öllu hráefninu fyrir kjúklinginn og marinerið kjúklinginn í amk. 30 mín. Helst yfir nótt ef þú hefur tíma.

  2. 2

    Kveikið á ofninum og stillið á 150°C. Takið til skál, skurðabretti, blandara og 2 potta og 1 pönnu.

  3. 3

    Hitið olíu á stóri pönnu á miðlungshita, steikið kjúklinginn þar til brúnn eða um 3 mín á hvorri hlið. (Kjúklingurinn klárast að eldast í sósunni.) Skerið kjúklinginn svo í bita.

Sósa

  1. 1

    Steikið lauk upp úr smjöri í potti þar til mjúkur og brúnaður.

  2. 2

    Bætið útí söxuðum hvítlauk og rifnu engifer og leyfið því að malla í 1 mínútu. Bætið svo kóríander, kúmen og garam masala við og hrærið öllu saman.

  3. 3

    Setjið tómatana, chilli flögur og smá salt í blönduna og leyfið þessu öllu að malla í um 10 mín.

  4. 4

    Þegar sósan hefur fengið að malla skal setja hana í blandara (hægt er að nota töfrasprota) þar til allt er maukað.

  5. 5

    Hellið sósunni svo aftur í pottinn, bætið útí kjúklingabitunum, rjómanum og sykrinum og leyfið þessu að sjóða í 8-10 mín þar til sósan er þykk og mallar.

Meðlæti

  1. 1

    Skolið hrísgrjónin og sjóðið í 600 ml af vatni í um 12-15 mín eða þar til allt vatn er gufað upp.

  2. 2

    Bleytið naan brauðið aðeins og setjið inn í ofn í 5 mín þar til heitt og mjúkt.

  3. 3

    Berið fram ljúffengan butter chicken með hrísgrjónum og naan brauði. Gott er að strá söxuðum kóríander yfir.

Instagram

Viltu fleiri rétti eins og þennan?

Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.

Fylgja @baramatur

Eldaðirðu þetta?

Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.

Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.

Ummæli

Þú þarft að vera innskráð til að setja inn ummæli.Skrá sig inn
Hleð ummælum…
Auglýsing
Póstlistinn

Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið

Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.

Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.