
Thai yellow Curry kjúklingur
Aðferð
- 1
Skerðu lauk, gulrætur og kartöflur niður. Gulrætur taka lengri tíma að mýkjast, svo skerðu þær í minni bita. Kartöflurnar mega vera í stærri bitum. Settu til hliðar.
- 2
Skerðu kjúklingabringurnar í þunnar sneiðar og settu í skál. Veltið kjúklingnum upp úr ólífuolíu, karrídufti, túrmeriki, hvítlauksdufti, salti og pipar.
- 3
Hitaðu smá ólífuolíu í potti eða wokpönnu á meðalhita og bættu kjúklingnum út í. Eldaðu í um 5–7 mínútur og hrærðu nokkrum sinnum. Taktu kjúklinginn svo upp úr og settu til hliðar. Það er í lagi þó hann sé ekki alveg eldaður í gegn – hann klárast að elda síðar.
- 4
Bættu aðeins meiri ólífuolíu í pottinn og settu kartöflur, gulrætur og lauk út í. Steiktu og hrærðu í um 5 mínútur og bættu svo gula karrímaukinu út í. Gott karrímauk skiptir máli!
- 5
Hrærið þar til maukið hefur blandast vel saman. Hellið síðan kókosmjólk og kjúklingasoði (má vera 1 bolli vatn og 1 og hálfur kjúlingarkraftur) út í og hrærið.
- 6
Þegar rétturinn byrjar að malla rólega, setjið kjúklinginn aftur út í og lokið pottinum. Látið malla á lágum/meðallágum hita í um 15-20 mínútur eða þar til kartaflan er mjúk. Best að útbúa hrísgrjónin núna og hita Naanbruðið
- 7
Ef þú vilt þykkari sósu skaltu bæta maísena og vatn í glas og blandið það saman og bætið út í pottinn undir lokin.
- 8
Berið fram með hrísgrjónum og naanbrauði og toppið með ferskum kóríander.
Athugasemd kokksins
Þessi réttur er svo góður daginn eftir líka 🤍 Mér finnst best að borða hann með naanbrauði eða hvítlauksbrauði til að dýfa í sósuna. Þetta er klárlega einn af þeim réttum sem eru oft hjá mér í matinn 🍛
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






