
Sveppa Risotto
Ítalskur hrísgrjónaréttur
Aðferð
- 1
Skerið sveppina í sneiðar. Hitið 1 msk af ólífuolíu á meðalhita á pönnu. Steikið sveppina þar til þeir mýkjast og fá fallegan lit (um 5-7 mínútur). Takið af pönnunni og setjið til hliðar.
- 2
Í stórri pönnu eða potti, hitið 1 msk af ólífuolíu og smjörið á meðalhita. Steikið laukinn og hvítlaukinn þar til hann er mjúkur og glær, en ekki brúnn. Bætið risotto hrísgrjónunum við og hrærið í 1-2 mínútur þar til hrísgrjónin verða glansandi.
- 3
Hellið hvítvíninu út í og eldið þar til það er næstum alveg gufað upp.
- 4
Leysið upp grænmetiskraftinn í 500 ml af vatni. Bætið síðan grænmetissoðinu út í hrísgrjónin og hrærið stöðugt. Þegar vökvinn hefur gufað upp, bætið annarri ausu af soði við. Endurtakið þetta ferli þar til hrísgrjónin eru orðin mjúk (um 18-20 mínútur).
- 5
Þegar risottoið er tilbúið, bætið steiktu sveppunum, rifnum pecorino osti og smá smjöri út í. Hrærið varlega saman. Smakkið til með salti og pipar.
- 6
Skreytið með ferskri steinselju og pecorino. Berið fram strax og njótið með góðu brauði og jafnvel hvítvínsglasi.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






