Fara í efnið
BaraMatur
Súrsætur Kjúklingur
Aðalréttir#kjúklingur#hrísgrjón#kínverskt

Súrsætur Kjúklingur

Heimagerða súrsæta sósan er talsvert betri en sósurnar sem fást tilbúnar í búðum. Þetta er fljótlegur og dásamlegur kvöldmatur sem á eftir að slá í gegn hjá öllum á heimilinu

STAÐFEST
21. ágúst 2026
183áhorf
Einkunn
5,0
2 atkv.
Tími
25 mín
10 + 15 mín
Orka
–
  1. 1

    Skerið kjúklingabringurnar í hæfilega litla bita og setjið í skál.

  2. 2

    Bætið við hvítlaukskryddi, chili flögum, papriku, pipar og salti.

  3. 3

    Bætið matarsóda, maíssterkju og 1 eggi út í skálina og hrærið öllu vel saman. Látið standa á meðan sósan og grænmetið er græjað.

  4. 4

    Setjið tómatsósu, szójasósu, hvítvínsedik, púðursykur og ananassafann úr dósinni í skál.

  5. 5

    Hrærið vel saman þar til sykurinn leysist upp og leggið til hliðar.

  6. 6

    Hitið smá olíu á pönnu og steikið kjúklingabitana þar til þeir eru eldaðir í gegn og komnir með fallega húð. Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið í skál til hliðar.

  7. 7

    Mýkið lauk, papriku og ananasbita á sömu pönnu í dálítinn tíma.

  8. 8

    Hellið súrsætu sósunni yfir grænmetið á pönnunni og látið hana malla og þykkna í nokkrar mínútur.

  9. 9

    Bætið steikta kjúklingnum aftur út á pönnuna og látið öll hráefnin malla saman í 2–3 mínútur til viðbótar svo bragðið blandist vel.

  10. 10

    Berið rjúkandi heitan súrsæta kjúklinginn fram yfir nýsoðnum hrísgrjónum og njótið!

Instagram

Viltu fleiri rétti eins og þennan?

Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.

Fylgja @baramatur

Eldaðirðu þetta?

Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.

Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.

Ummæli

Þú þarft að vera innskráð til að setja inn ummæli.Skrá sig inn
Hleð ummælum…
Auglýsing
Póstlistinn

Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið

Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.

Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.