
Súrdeigspizza
Napólítanskur innblástur
Aðferð
Deigið
- 1
Blandaðu öllu saman í skál og hrærðu þar til deigið heldur formi. Hvíldu deigið í 30 mínútur.
- 2
Teygðu og brjóttu deigið í skálinni (stretch & fold aðferð) nokkrum sinnum með 30 mínútna millibili, alls um fjórum sinnum.
- 3
Leyfðu deiginu að hefast við stofuhita í 4–8 klst. (þangað til það hefur tvöfaldast eða nálægt því).
- 4
Skiptu deiginu í 4 kúlur og geymdu í ísskáp í að minnsta kosti 6 klst (allt að 3 daga). Því lengur í kæli, því bragðmeira deig.
- 5
Taktu deigið út úr kæli klukkutíma fyrir bakstur og hitaðu ofninn með steini eða ofnplötu (eða nota pizzaofn).
- 6
Mótaðu botninn á vel hveitistráðu borði, dreifðu sósunni jafnt yfir, bættu við áleggi að eigin vali.
- 7
Ofnar eru mismunandi, svo fylgstu vel með og aðlagaðu tímann að þínum ofni. Heimilisofn með steini/bökunarplötu: 5–6 mínútur við 250–300°C. Pizzaofn (400–450°C): 90 sek – 2 mínútur.
Pizzasósa
- 1
Helltu tómötum í skál og kreistu tómatana með höndunum.
- 2
Saxaðu hvítlauk og basilíku og hrærðu saman við tómatana með salti og ólífuolíu þar til sósan nær réttri áferð.
- 3
Láttu sósuna standa í 10–15 mín. Smakkaðu til með salti og settu smá sykur ef sósan er mjög súr.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






