Aðferð
- 1
Forhitið ofninn í 200°C og fletjið pizzadeigið út, ef þess þarf.
- 2
Blandið ólífuolíu, söxuðum hvítlauk og saxaðri steinselju saman í litla skál. Penslið olíunni yfir deigið en skiljið smá eftir.
- 3
Rifið niður allan parmesan ostinn en skiljið smá eftir. Dreifið honum yfir deigið ásamt helmingnum af mozzarella ostinum. Leggið pepperoni sneiðar yfir (má bæta við áleggjum) og stráið restinni af mozzarella ostinum yfir.
- 4
Rúllið deiginu þétt og passið að áleggið færist ekki of mikið til og lokið endunum. Færið á bökunargrind með bökunarpappír.
- 5
Blandið eggi og matskeið af vatni saman og penslið yfir upprúllaða deigið. Dreifið restinni af parmesan ostinum yfir og saltið og kryddið að vild.
- 6
Skerið rákir ofan á deigið svo það springi ekki og færið inn í ofn í 25–30 mínútur eða þar til deigið er gullbrúnt.
- 7
Takið úr ofninum og leyfið að kólna, skerið í bita og berið fram með pizzasósu.
Athugasemd kokksins
“Stromboli er mjög skemmtilegt ”twist” á pizzu. Það er hægt að nota hvaða álegg sem ykkur líkar til að fullkomna ykkar stromboli. ”
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.







