
Steik & pasta
nautasteik og tagliatelle
Aðferð
- 1
Sjóðið pastað í vel söltu vatni þar til það er al dente. Takið frá um 150 ml af pastavatni áður en pastað er sigtað.
- 2
Hreinsið steikina og kryddið vel með salti og pipar.
- 3
Hitið pönnu á háum hita. Bætið ólífuolíu út í. Steikið steikina í 2–3 mínútur á hvorri hlið (medium-rare er best).
- 4
Bætið smjöri, hvítlauk og kryddurtum út á og ausið smjörinu yfir steikina.
- 5
Takið steikina af pönnunni og látið hvíla í 5 mínútur.
- 6
Lækkið hitann, setjið smjör á sömu pönnu og steikið lauk í 2–3 mínútur. Bætið söxuðum hvítlauk út og leyfið að steikjast aðeins (hér má setja á smá hvítvin með). Bætið rjóma og sinnep út í og látið malla í 2–3 mínútur.
- 7
Hrærið parmesan út í og þynnið með pastavatni þar til sósan er silkimjúk. Bætið pastanu í sósuna og blandið vel.
- 8
Berið fram í skál, skerið kjötið í sneiðar og leggið yfir pastað. Toppið með saxaðri steinselju.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






