
Piparkökur
Klassískar piparkökur með hvítum glassúr
Aðferð
Piparkökur
- 1
Bræðið saman smjör og síróp í potti við miðlungshita.
- 2
Setjið öll þurrefnin í skál og blandið þeim saman í hrærivél.
- 3
Bætið smjörblöndunni varlega saman við og hnöðið deigið með hnoðkróknum.
- 4
Stráið smá hveiti á hreinan borðflöt og hnöðið deigið í kúlu. Setjið deigið í skál, leggið plastfilmu yfir og kælið í ísskáp yfir nótt (a.m.k. Í 3 klukkustundir).
- 5
Fletjið deigið mjög þunnt, mótið kökur með smákökuformum og leggið á bökunarplötu. Bakið kökurnar í 6-7 mínútur við 200°C.
Glassúr
- 1
Sigtið flórsykurinn í skál og bætið 2 msk af mjólk í skálina og hrærið vel saman. Ef þörf er á, bætið við meiri mjólk, 1 tsk í einu, þar til réttri þykkt er náð. Að lokum, hrærið vanilludropunum saman við.
- 2
Til að fá mismunandi liti skiptið glassúrnum í nokkrar skálar og bætið matarlit við í hverja skál.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






