
Mjúkir kanilsnúðar
Með rjómaostakremi
Aðferð
- 1
Hitið mjólk í potti þangað til hún er volg, bætið þá gerinu saman við og leyfið að gerjast í 2–3 mínútur.
- 2
Setjið þurrefnin í hrærivélarskál og blandið eggjum og mjólkinni rólega saman við.
- 3
Hrærið saman og bætið smjörinu hægt og smátt saman við.
- 4
Hrærið á hægum hraða í 5–10 mínútur.
- 5
Leyfið deiginu að hefa sig í 1 klukkustund eða þangað til það hefur tvöfaldast í stærð.
- 6
Setjið allt saman í skál og bræðið örstutt í örbylgjuofni eða potti.
- 7
Hrærið vel saman og leyfið að hvíla við stofuhita meðan deigið er að hefa sig.
- 8
Stillið ofninn á 180°C, fletjið deigið út og dreifið fyllingunni jafnt yfir.
- 9
Rúllið deiginu upp og skerið í 2 cm breiða snúða.
- 10
Raðið þeim í eldfast mót og leyfið þeim að hefa sig aftur í 30 mínútur með viskastykki yfir mótinu.
- 11
Setjið þá í ofninn og bakið í 30–40 mínútur.
- 12
Blandið öllu saman og þeytið í 3–5 mínútur.
- 13
Leyfið snúðunum að kólna og dreifið síðan kreminu fallega yfir.
- 14
Snúðarnir eru bestir þegar þeir eru enn volgir, en auðvitað geggjaðir kaldir líka!
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






