
Marry Me Kjúklingur
Kjúklingaréttur með rjómasósu og sólþurrkuðum tómötum
Aðferð
- 1
Þurrkið kjúklingabringurnar og kryddið báðar hliðar með hvítlauksdufti, papriku og salti og pipar.
- 2
Hitið ólífuolíu og smjör á stórri pönnu á miðlungshita. Steikið kjúklinginn í 4-5 mínútur á hvorri hlið eða þar til hann er gullinbrúnn. Færið hann þá til hliðar.
- 3
Bætið söxuðum hvítlauk og chili flögum á sömu pönnu og steikið í 30 sekúndur. Hellið kjúklingasoðinu á pönnuna og hrærið.
- 4
Bætið rjóma, sólþurrkuðum tómötum, rifnum parmesanosti og ítölsku kryddi (eða oreganó og basilíku) á pönnuna og hrærið saman. Leyfið sósuna malla í 2-3 mínútur þar til hún þykknar aðeins.
- 5
Setjið kjúklinginn aftur á pönnuna, ausið sósu reglulega yfir hann og látið malla í 5-7 mínútur í viðbót, eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn (75°C kjarnhiti).
- 6
Saxið ferska basilíku og stráið yfir kjúklinginn og berið fram með kartöflum, salati, hrísgrjónum eða pasta.
Athugasemd kokksins
Tilvalið að elda þetta fyrir makann á Valentínusardag!
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






