
Lúxus létipasta
Engin fyrirhöfn, fljótlegt og frábært!
Aðferð
- 1
Skerið kjúklingabringurnar niður í litla bita eða þunnar sneiðar. Kryddið vel með salti og pipar.
- 2
Steikið kjúklingann á pönnu upp úr smá olíu eða smjöri á meðalhita þar til hann er fulleldaður. Þetta tekur yfirleitt um 6–7 mínútur eftir stærð bitanna. Setjið kjúklinginn síðan til hliðar á disk.
- 3
Sjóðið pasta í vel söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakka. Geymið 1–1,5 dl af pastavatni áður en vatnið er hellt af.
- 4
Steikið hvítlaukinn í sama fæti eða pönnu og kjúklingurinn fór á, ásamt smjörinu, á meðalhita þar til hvítlaukurinn verður mjúkur og gullinn. Passið að hann brenni ekki.
- 5
Hellið rjómanum út í og látið hann malla í 2–3 mínútur. Bætið parmesan út í og hrærið.
- 6
Setjið pasta saman við og blandið vel saman við sósuna. Bætið smá pastavatni út í eftir þörfum til að þynna sósuna. Bætið kjúklinganum aftur út í og blandið öllu vandlega saman. Kannið að kjúklingurinn hitni vel í sósunni.
- 7
Skreytið með spínati, chilli flögum og parmesan ef óskað er. Smakkið til, bætið salti og pipar og njótið!
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






