
Kjúklinga Taco í ofni
Þetta kjúklinga taco er stökkt að utan en mjúkt og djúsí að innan. Þessi réttur er algjör bjargvættur á virkum dögum og fullkomin leið til að nýta afgangskjúkling!
Aðferð
- 1
Saxið kjúklinginn og rauðlaukinn smátt niður og setjið í skál. Bætið sýrðum rjóma, salsa sósu og taco-kryddi út í skálina ásamt 1 dl af rifnum osti. Hrærið öllu vel saman þar til komin er jöfn og bragðgóð kjúklingablanda. Raðið litlu taco-kökunum á borðið. Setjið eina góðaskeið (t.d. Með ís- eða matskeið) af kjúklingablöndunni á annan helminginn á hverri köku og smyrjið aðeins úr henni. Stráið smá rifnum osti yfir fyllinguna. Brjótið hinn helminginn á kökunni yfir svo úr verði litlar “lokaðar” tacos. Raðið þeim þétt á ofnplötu klædda bökunarpappír (þessi uppskrift dugar í um 16 litlar kökur). Bakið í ofni við 200°C í um það bil 10 mínútur þar til kökurnar eru orðnar stökkar og osturinn er bráðnaður. Raðið stökku kjúklinga-tacos á disk ásamt salati og sprautið ríflega af hvítlaukssósu yfir allt saman. Njótið!
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






