
Íslenskar pönnukökur
Þessar klassísku! (Sirka 20 pönnukökur)
Aðferð
Pönnukökur
- 1
Blandið þurrefnunum saman í skál. Þeytið saman eitt egg og 250 ml af mjólk, hellið því út í þurrefnin og hrærið þar til deigið er kekkjalaust. Þeytið síðan hitt eggið saman við 250 ml af mjólk ásamt vanilludropum, bætið því út í deigið og hrærið áfram þar til allt er vel blandað.
- 2
Bræðið smjörið á pönnu og hellið því út í deigið, hrærið saman.
- 3
Best er að baka þunnar pönnukökur úr deiginu. Gott er að hræra reglulega í deiginu og þynna það með mjólk.
- 4
Hellið þunnu lagi af deigi á pönnuna og bakið þar til yfirborðið fer að þorna. Snúið pönnukökunni við og bakið þar til hún er ljósbrún á hinni hliðinni.
- 5
Úr einni uppskrift fást um 20–25 pönnukökur. Rúllið þeim upp með sykri eða berið fram með til dæmis jarðarberjum og sírópi eða öðrum ávöxtum!
Athugasemd kokksins
Þetta eru sirka 20 pönnukökur, við reiknum með 4 pönnukökum á mann!
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






