Aðferð
- 1
Kveikið á ofninum og stillið hann á 200°C.
- 2
Klippið skelina á humrinum ofanvert, takið kjötið upp úr skelinni og hreinsið görnina. Kryddið kjötið með salti og pipar.
- 3
Bræðið smjörið í potti, pressið hvítlaukinn út í smjörið og látið malla á lágum hita í um 5 mínútur.
- 4
Bætið síðan rjóma og hænsnakrafti út í smjörið og hrærið vel. Látið blönduna malla í um 5 mínútur til viðbótar.
- 5
Setjið lítið magn af brauðraspi ofan á hvern humarhala og dreifið hvítlaukssmjörinu yfir með skeið.
- 6
Bakið humarhalana í ofni á 200°C í um 7 mínútur. Mikilvægt er að fylgjast vel með, þar sem eldunartími fer eftir stærð humarhalanna. Þegar þeir eru tilbúnir ættu þeir að vera hvítir og þéttir.
- 7
Berið fram með auka hvítlaukssmjöri og skreytið með ferskri steinselju.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.







