Fara í efnið
BaraMatur
Grísakótelettur í hvítlaukspipar marineringu
Aðalréttir#svín#grænmeti

Grísakótelettur í hvítlaukspipar marineringu

Með steiktum kartöflum og salati

BaraMatur Stimpillinn
Uppskrift fráBaraMatur
25. apríl 2026
20,6 þús.áhorf
Einkunn
–
Engin einkunn enn
Tími
65 mín
20 + 45 mín
Orka
–
  1. 1

    Forhitið ofninn í 200°C.

  2. 2

    Skerið kartöflur í helminga eða báta og setjið í skál. Bætið við ólífuolíu, söxuðum hvítlauk, rósmarín, salti og pipar og blandið vel saman.

  3. 3

    Dreifið kartöflunum á bökunarpappírsklædda ofnplötu og bakið í 20–25 mínútur.

  4. 4

    Kveikið á grillinu og skiljið eftir einn brennara ókveiktan fyrir óbeinan hita. Látið grillið hitna að miðlungshita. Opnið pakkningarnar og geymið umbúðirnar til að nota marineringu til að pensla kjötið. Grillið sneiðarnar í 2–3 mínútur á hvorri hlið yfir beinum hita, færIÐ þær svo yfir á óbeinan hita í um 10 mínútur, eða þar til kjarnhiti nær 67°C. Látið kjötið hvíla í 5–10 mínútur þar til það nær 70°C.

  5. 5

    Hitið pönnu á meðalháum hita og steikið marinerað grísakjöt í 2–3 mínútur á hvorri hlið, þar til það hefur fengið góðan lit.

  6. 6

    Færið kjötið í eldfast mót, setjið smá smjörklípu ofan á og bakið það í ofninum, fyrir ofan kartöflurnar, í um það bil 10 mínútur.

  7. 7

    Skerið niður allt grænmeti og setjið í stóra skál. Í minni skál hrærið saman ólífuolíu, sítrónusafa, salti og pipar. Hellið dressingunni yfir salatið og blandið varlega saman.

  8. 8

    Berið allt fram með hvítlaukssósu.

Athugasemd kokksins

“Að setja smá smjörklípu á grísakjötið heldur kjötinu safaríku, svo er fínt að setja smá hunang í dressinguna fyrir salatið.”

Instagram

Viltu fleiri rétti eins og þennan?

Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.

Fylgja @baramatur

Eldaðirðu þetta?

Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.

Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.

Ummæli

Þú þarft að vera innskráð til að setja inn ummæli.Skrá sig inn
Hleð ummælum…
Auglýsing
Póstlistinn

Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið

Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.

Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.