
Ferskt guacamole
Gróft og ferskt, tilbúið á fimmtán mínútum með gaffli og skál.
Aðferð
- 1
Skerið avókadóin í tvennt, takið steinana úr og skafið aldinkjötið úr hýðinu með skeið.
- 2
Skerið avókadóið gróft niður í skál og stappið aðeins með gaffli. Stappið ekki of mikið, guacamole má alveg vera gróft og bitamikið.
- 3
Skerið kirsuberjatómatana smátt niður og setjið út í sömu skál.
- 4
Saxið rauðlaukinn mjög smátt ásamt hvítlauksrifjunum og rauða chilipiparnum og bætið öllu út í skálina.
- 5
Setjið sýrða rjómann saman við og kreistið límónusafann yfir. Límónusafinn heldur guacamole grænu og gefur ferskleika.
- 6
Hrærið varlega saman með sleikju og kryddið til með salti og svörtum pipar. Smakkið og bætið við límónusafa eða salti ef þarf.
- 7
Berið fram strax í taco eða vefju, eða sem ídýfu með tortillaflögum.
Athugasemd kokksins
Guacamole geymist í lokuðu íláti í kæli í einn dag. Leggið plastfilmu alveg ofan á yfirborðið svo það komist ekkert loft að, þá heldur það græna litnum mun betur. Viljið þið meiri ferskleika má saxa lúku af ferskum kóríander saman við rétt áður en borið er fram, og aukaskvetta af límónusafa gerir það líka léttara.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






