
Chimichurri
Tíu mínútur með hníf og skál, og nautasteikin verður allt önnur.
Aðferð
- 1
Skolið steinseljuna og þerrið hana vel, til dæmis í hreinu viskastykki. Blaut steinselja þynnir sósuna og hún geymist verr.
- 2
Fínsaxið steinseljuna, bæði blöð og fínu stilkana. Saxið hvítlauksrifin smátt.
- 3
Skerið chilipiparinn eftir endilöngu, skafið fræin úr og saxið hann fínt. Viljið þið sterkari sósu má láta hluta af fræjunum fylgja með.
- 4
Setjið steinselju, hvítlauk og chilipipar í skál og hellið hvítvínsedikinu yfir. Látið standa í eina til tvær mínútur svo edikið mýki hvítlaukinn.
- 5
Hrærið ólífuolíunni saman við í mjórri bunu þar til sósan er þykk og græn og olían hylur allt saman.
- 6
Smakkið til með salti og nýmöluðum pipar. Látið sósuna standa í að minnsta kosti tíu mínútur við stofuhita svo bragðið nái sér á strik.
- 7
Hrærið vel í sósunni rétt áður en hún er borin fram og setjið væna skeið yfir nautasteikina, eða berið hana fram í skál með grilluðu kjöti, fiski og grænmeti.
Athugasemd kokksins
Chimichurri geymist í lokaðri krukku í kæli í fjóra til fimm daga og olían má gjarnan fljóta yfir sósuna til að verja hana. Takið hana út um hálftíma fyrir framreiðslu, því olían stífnar í kæli, og hrærið vel. Viljið þið fínni og jafnari áferð má setja allt í matvinnsluvél og púlsa nokkrum sinnum, en ekki mauka of lengi því þá missir sósan fallega græna litinn.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






