
Big mac taco
Aðferð
- 1
Setjið hakk í skál, saltið, piprið og blandið vel saman með höndunum.
- 2
Búið til sex jafn stórar kúlur með hakkinu og leggið til hliðar.
- 3
Skolið Jöklasalat og saxið smátt.
- 4
Hitið pönnu á miðlungsháum hita, leggið vefju á pönnuna og pressið hakkkúluna á vefjuna svo hún þekji hana alla. Snúið við og steikið kjötið.
- 5
Þegar kjötið er steikt snúið þá vefjunni við, leggið ostinn á og setjið lok á pönnuna þar til osturinn bráðnar.
- 6
Takið vefjuna af pönnunni og toppið með hamborgarasósu og söxuðu káli. Endurtakið ferlið.
- 7
Njótið!
Athugasemd kokksins
“Þetta smakkast alveg eins og Bigmac jafnvel betur!” Amerísk hamborgarsósa: (sinnep, majónes, tómatsósa og saxaðar súrar gúrkur)
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






