
Arroz doce
Arroz doce er hefðbundinn portúgalskur eftirréttur úr hrísgrjónum sem eru soðin í mjólk með sykri, sítrónuberki og kanilstöng. Rétturinn er mjúkur og kremkenndur, oft borinn fram kaldur eða volgur og skreyttur með kanildufti í mynstri ofan á. Hann er sérstaklega vinsæll á hátíðum og fjölskyldusamkomum í Portúgal
Aðferð
- 1
Sjóða hrísgrjónin Settu vatnið og hrísgrjónin í pott og láttu á hellu.
- 2
Bættu við smá salti og láttu sjóða þar til vatnið hefur gufað upp best að hafa helluna á miðlungshita.
- 3
Þegar vatnið er farið skaltu bæta við: * 1700 ml Mjólk * smjörinu * 3 strimla af sítrónuberki * kanilstöngunum
- 4
Hrærðu og láttu malla í 30 mínútur. Hrærðu af og til svo það festist ekki við botninn MIKILVÆGT.
- 5
Eftir 30 mínútur skaltu bæta sykrinum og Condenst milk út í og hræra og láta það malla saman í 2 - 3 mínútur.
- 6
Veiðið kanilstöngina og sítronubörkinn uppúr.
- 7
Hrærðu eggjarauðurnar saman við tebollann af mjólk í sér skál
- 8
Á meðan þú hrærir stöðugt skaltu hella eggjablöndunni rólega út í pottinn.
- 9
Þegar það byrjar að bubbla létt (fyrstu loftbólur) skaltu slökkva á hitanum. Ekki sjóða lengi eftir að eggin fara út í.
- 10
Kæla Settu arroz doce í skálar eða eldfastmót og láttu í ísskáp.
- 11
Þegar hann er kaldur skaltu strá kanildufti yfir og þá er hann tilbúinn.
Athugasemd kokksins
Arroz doce geymist vel í ísskáp í allt að 3–4 daga í lokuðu íláti. Mér finnst persónulega mjög gott að hita hann aðeins daginn eftir, um 10–15 sekúndur í örbylgjuofni, til að fá hann örlítið volgann og extra kremkenndan – en það er algjört smekksatriði.
Viltu fleiri rétti eins og þennan?
Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.
Eldaðirðu þetta?
Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.
Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.
Ummæli
Þér gæti líka líkað þetta
Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið
Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.
Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.






