Fara í efnið
BaraMatur
Allar jólasteikurnar
Gljáður hamborgarhryggur á bretti
Varan þínHamborgar­hryggur
Saltaður og reyktur

Gljáður hamborgarhryggur

Íslenskur grísahryggur, saltaður og reyktur. Hann er eldaður hægt í ofni eða potti, gljáður í lokin og tekinn út við 68 °C.

  • Kjarnhiti 68 °C
  • 150 °C ofn
  • 60 til 70 mín. á kg
Þín steik

Hvað er hryggurinn þungur?

Aðferð

Jöfn eldun og gott soð í sósuna.

Stendur á miðanum

1,5kg

Inn í ofninn

kl.15.35

Svo er matur kl. 18.00.

Í ofni
1 klst. og 30 til 45 mín.
Kjarnhiti
64 °C gljáinn á · 68 °C út
Dugar fyrir
5 til 6 manns
Sjá planið
Planið

Matur kl. 18.00, á mínútunni

Fyrir 1,5 kg hamborgarhrygg í ofni. Tímarnir fylgja þyngdinni, en kjarnhitamælirinn ræður alltaf. Breyta

Daginn áður

  • Sjóðið og flysjið kartöflurnar.
  • Sjóðið rauðkálið. Það geymist í 2 vikur.
  • Ristið hneturnar og skerið selleríið.
  1. Hryggurinn úr kæli

    Takið umbúðirnar af og þerrið hrygginn með eldhúspappír.

  2. Hitið ofninn í 150 °C

    Undir- og yfirhiti.

  3. Hryggurinn inn í ofninn

    Leggið hrygginn á grind yfir ofnskúffunni og hellið 1 l af heitu vatni í skúffuna. Stingið kjarnhitamæli í miðju þykkasta hlutans, ekki í fituröndina. Eldið í 1 klst. og 30 til 45 mín., eða þar til mælirinn sýnir 64 °C, og bætið heitu vatni í skúffuna ef hún þornar.

  4. Útbúið gljáann

    Ananas og púðursykur. Takið frá það sem fer í sósuna.

  5. Gljáinn á

    Þegar mælirinn sýnir 64 °C: takið hrygginn út og hækkið ofninn í 200 °C. Sigtið soðið úr skúffunni í pott fyrir sósuna og smyrjið gljáanum jafnt yfir. Bakið í 10 til 15 mín., þar til kjarnhitinn nær 68 °C.

    Ananas og púðursykur
  6. Waldorf-salatið hrært saman

  7. Sósan úr soðinu

    Kraumar í 10 til 15 mín.

  8. Brúnið kartöflurnar

    10 til 12 mín. á pönnu.

  9. Hryggurinn hvílir

    Takið hann út við 68 °C og látið hvíla í 15 mín. undir álpappír.

  10. Hitið rauðkálið

  11. Matur

    Skerið hrygginn í sneiðar og berið fram.

Gljáinn

Veldu gljáa

Bakaður við 200 °C í 10 til 15 mín.

Ananas og púðursykur

Klassíkin á íslenska jólaborðinu. Sætur, glansandi og mildur.

Hráefni

  • 3 msk.smjör
  • 3 msk.púðursykur
  • 1 msk.dijon-sinnep
  • 1 dlananassafi
  • ananashringir úr dós, eftir smekk

Aðferð

  1. 1

    Bræðið smjörið í litlum potti og hrærið púðursykri og sinnepi saman við.

  2. 2

    Hellið ananassafanum út í og látið sjóða í 2 mín.

  3. 3

    Smyrjið gljáanum á og raðið ananashringjum ofan á ef vill.

Á borðið

Það sem fer með

Merktu við það sem fer á borðið og það raðast inn í planið. Smakkaðu soðið alltaf áður en það fer í sósu, því það getur verið salt.

Meðlæti

  • Sæt karamella á móti saltri, reyktri steikinni. Dugar fyrir 6 manns.

    Hráefni

    • 1 kglitlar kartöflur
    • 1 dlsykur
    • 30 gsmjör
    • ½ dlvatn

    Aðferð

    1. 1Sjóðið kartöflurnar daginn áður, flysjið þær heitar og kælið. Kaldar kartöflur halda lögun á pönnunni.
    2. 2Bræðið sykurinn á þurri pönnu við meðalhita. Hristið pönnuna en hrærið ekki fyrr en hann er orðinn gullinbrúnn.
    3. 3Bætið smjöri og vatni út í og hrærið þar til karamellan er slétt.
    4. 4Veltið kartöflunum í karamellunni við vægan hita í 10 til 12 mín., þar til þær eru heitar í gegn og gljáandi.
  • Sýra og sæta sem skera fituna. Enn betra eftir dag í kæli. Dugar fyrir 8 manns.

    Hráefni

    • 1 stk.rauðkálshaus, um 1 kg
    • 2 stk.græn epli
    • ⅔ dlrauðvínsedik
    • 1 dlsykur
    • ⅔ dlsólberjasaft
    • ½ tsk.salt
    • 1 msk.smjör

    Aðferð

    1. 1Skerið rauðkálið í þunnar ræmur og eplin í litla bita.
    2. 2Bræðið smjörið í stórum potti og veltið rauðkálinu og eplunum upp úr því.
    3. 3Bætið ediki, sólberjasaft, sykri og salti út í og hrærið.
    4. 4Látið malla undir loki við vægan hita í 1,5 til 2 klst. og hrærið öðru hverju. Smakkið til með sykri og ediki.
    5. 5Kælið og geymið í lokaðri krukku. Rauðkálið geymist í kæli í allt að 2 vikur.
  • Kalt, stökkt og ferskt á móti heitri steikinni. Dugar fyrir 6 manns.

    Hráefni

    • 60 gvalhnetur
    • 2 stk.græn epli
    • 3 stk.sellerístilkar
    • 150 ggræn vínber
    • 1 tsk.sítrónusafi
    • 2,5 dlrjómi
    • 2 msk.majónes

    Aðferð

    1. 1Ristið valhneturnar á þurri pönnu og saxið þær gróft.
    2. 2Skerið eplin og selleríið í litla bita og veltið eplunum upp úr sítrónusafanum. Skerið vínberin í tvennt.
    3. 3Þeytið rjómann og hrærið majónesinu varlega saman við.
    4. 4Blandið öllu saman rétt fyrir mat og stráið nokkrum hnetum yfir.
  • Litur á diskinn og ekkert umstang. Dugar fyrir 6 manns.

    Hráefni

    • 1 dósgrænar baunir, eða 400 g frosnar
    • 20 gsmjör
    • salt eftir smekk

    Aðferð

    1. 1Hitið baunirnar í potti, eða sjóðið frosnar baunir í söltu vatni í 3 til 4 mín.
    2. 2Hellið vatninu af og veltið þeim upp úr smjörinu.

Sósur

  • Soðið af steikinni og afgangur af gljáanum gera sósuna. Dugar fyrir 6 manns.

    Hráefni

    • 5 dlsoð af steikinni
    • 2,5 dlrjómi
    • 3 til 4 msk.af gljáanum
    • 1 msk.maíssterkja
    • salt og pipar

    Aðferð

    1. 1Sigtið soðið í pott og smakkið það. Sé það mjög salt, þynnið það með vatni.
    2. 2Bætið rjómanum og gljáanum út í og látið krauma í 10 til 15 mín.
    3. 3Hrærið maíssterkjuna út í dálitlu köldu vatni, hellið henni út í og látið sjóða í 1 til 2 mín.
    4. 4Smakkið til og saltið aðeins í lokin.
  • Uppskrift BaraMatur: malt, sinnep og steiktir sveppir. Dugar fyrir 6 manns.

    Hráefni

    • 1 msk.smjör
    • 6 stk.stórir sveppir
    • 350 mlvatn
    • 1 stk.nautakraftur
    • 350 mlmaltöl
    • 3 msk.sterkt sinnep
    • 1 msk.púðursykur
    • 2 msk.maíssterkja
    • 150 mlrjómi
    • 3 msk.hvítvínsedik
    • salt og pipar

    Aðferð

    1. 1Steikið sveppina í smjörinu í 5 til 6 mín., þar til þeir eru gullinbrúnir, og takið þá til hliðar.
    2. 2Leysið kraftinn upp í sjóðandi vatninu og bætið malti, sinnepi og púðursykri út í. Látið malla án loks í 30 til 40 mín.
    3. 3Þykkið með maíssterkju hrærðri út í kalt vatn og látið sjóða í 1 til 2 mín.
    4. 4Bætið rjóma og sveppum út í, hitið að suðu og smakkið til með ediki, salti og pipar.
    Opna uppskriftina
Gott að vita

Svo allt gangi upp

  • Kjarnhitinn ræður

    Tíminn er aðeins til að skipuleggja daginn. Stingið mælinum í miðju þykkasta hlutans, hvorki við bein né í fituröndina, og treystið honum frekar en klukkunni.

  • Ofn eða pottur?

    Í ofni verður kjötið meyrt og soðið gott í sósu. Í potti leysist hluti saltsins út í vatnið og bragðið verður mildara.

  • Gljáinn dökknar of hratt

    Leggið álpappír lauslega yfir og færið hrygginn neðar í ofninn.

  • Steikin er tilbúin of snemma

    Vefjið hana í álpappír og leggið hreint viskastykki yfir. Hún heldur vel hita meðan meðlætið klárast.

  • Enginn kjarnhitamælir?

    Fylgið efri mörkum eldunartímans. Kjarnhitamælir fæst þó víða og tekur alla óvissu burt.

Afgangar og geymsla

  • Setjið afganga í kæli um leið og mesti hitinn er rokinn úr þeim. Þeir geymast í 3 til 5 daga.
  • Frystið afganga í sneiðum og notið þá innan mánaðar.
  • Hryggur í samloku með rauðkáli og sinnepi er klassík á jóladag.
Ertu með aðra steik?

Upplýsingar um vöruna sjálfa, innihald og geymslu: Hamborgarhryggur á vörusíðunni