Fara í efnið
BaraMatur
Saltkaramellu Rjómaosta Gúmmelaðikökur
EftirréttirBakstur#kökur#smákökur#karamella

Saltkaramellu Rjómaosta Gúmmelaðikökur

Þessar djúsí gúmmelaðikökur eru gjörsamlega geggjaðar! Fullkomnar til að bjóða upp á í veislum eða einfaldlega þegar þig langar í eitthvað extra lúxus með kaffinu

STAÐFESTBaraMatur Stimpillinn
27. ágúst 2026
98áhorf
Einkunn
–
Engin einkunn enn
Tími
72 mín
60 + 12 mín
Orka
416 kcal
í 100 g
Ofn 175 °C

Smákökur

  1. 1

    Hitið ofninn í 175°C (blástur) eða 190°C (undir/yfirhita) og klæðið bökunarplötu með bökunarpappír.

  2. 2

    Þeytið saman smjör, sykur og púðursykur í stórri skál þar til blandan er mjúk og slétt.

  3. 3

    Bætið eggjum (einu og einu í einu) og vanilludropum út í og hrærið þar til allt er vel blandað og kremað.

  4. 4

    Blandið þurrhráefnunum varlega saman við smjörblönduna. Hrærið bara þar til allt hefur samlagast – gætið þess að hræra ekki of mikið.

  5. 5

    Mótið kúlur úr deiginu með skeið eða ísskeið og raðið á plötuna. Skiljið eftir um 5 cm millirými því kökurnar fletjast út.

  6. 6

    Bakið í 10–12 mínútur, eða þar til kantarnir verða ljósgylltir en miðjan er enn vel mjúk.

  7. 7

    Látið kökurnar standa á bökunarplottunni í nokkrar mínútur áður en þær eru færðar á grind til að kólna alveg.

Rjómaostaglassúr

  1. 1

    Þeytið rjómaost og smjör saman í 2–3 mínútur þar til blandan er létt og loftkennd.

  2. 2

    Bætið vanilludropum og flórsykri út í og hrærið vel saman í sléttan glassúr.

Saltkaramella

  1. 1

    Setjið sykurinn á pönnu á miðlungs hita. Fylgist vel með á meðan hann bráðnar og verður gullinn (passið að brenna hann ekki).

  2. 2

    Bætið smjörinu út í og blandið vel saman.

  3. 3

    Bætið að lokum volgum rjómanum út á og hrærið vel saman.

  4. 4

    Endið á að setja saltið út í og hræra vel.

  5. 5

    Færið karamelluna yfir í skál sem þolir hita og leyfið henni að kólna vel.

Samsetning

  1. 1

    Setjið rjómaostaglassúrinn og kældu karamelluna í hvorn sinn sprautupokann (eða smyrjið með skeið/spaða).

  2. 2

    Sprautið rjómaostaglassúrnum í jöfnum hringjum yfir kældar kökurnar.

  3. 3

    Toppið með því að sprauta saltkaramellunni í fallegu mynstri yfir glassúrinn.

Instagram

Viltu fleiri rétti eins og þennan?

Yfir 16.000 manns fylgja BaraMatur á Instagram. Þar birtast nýir réttir, myndbönd og ráð úr eldhúsinu.

Fylgja @baramatur

Eldaðirðu þetta?

Gefðu 1 til 5 stjörnur og segðu hvernig til tókst. Einkunn og ummæli hjálpa öðrum að velja.

Veldu stjörnur og skrifaðu endilega athugasemd. Við geymum hvort tveggja meðan þú skráir þig inn.

Ummæli

Þú þarft að vera innskráð til að setja inn ummæli.Skrá sig inn
Hleð ummælum…
Auglýsing
Póstlistinn

Fáðu bestu uppskriftirnar í pósthólfið

Nýjustu uppskriftirnar, vinsælustu réttirnir og ráð frá samfélaginu · allt á einum stað, þegar eitthvað spennandi gerist.

Enginn ruslpóstur og þú getur hætt hvenær sem er. Sjá persónuvernd.